Föstudaginn 30. apríl s.l. kynnti Sólrún Bergþórsdóttir útgáfu DVD disksins fyrir samstarfsaðilum og styrktaraðilum verkefnisins sem eru: Fræðslumiðstöð atvinnulífsins, Sjómennt (fræðslusjóður sjómanna), Landsamband íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) og Viska, fræðslu- og símenntunarmiðstöð Vestmannaeyja.
Í starfi sínu sem náms- og starfsráðgjafi í Eyjum átti Sólrún í erfiðleikum að ná til sjómanna til að kynna þeim sína námsmöguleika. Þess vegna ákvað Sólrún að nýta sér tæknina og koma með kynninguna út til sjómannanna þ.e. í sjálfa bátana.
Á DVD diskinum er að finna almennar upplýsingar út á hvað náms- og starfsráðgjöf gengur, viðtal við náms- og starfsráðgjafa og síðast en ekki síst að þá eru viðtöl við fjóra sjómenn sem hafa farið í nám samhliða sínum störfum. Þar segja þeir frá sínum kringumstæðum, hvernig námið hafi gengið og stöðu sinni í dag.